Ný heimasíða

www.ttv.is

Mývatn

veggspjald fyrir Mývatn með rútuklikkið á myndina

Eyfirski söguhringurinn

     

   Hollvinir Húna II, Sportrútan ehf. ásamt Verksmiðjunni á Hjalteyri, Kaffi-Lísu og Amtmannsetrinu á Möðruvöllum kynna Eyfirska söguhringinn. Húni II mun sigla með farþega til Hjalteyrar þar sem tekið verður á móti þeim með leiðsögn heimamanns. Eftir um klukkustundar stopp þar, er lagt er af stað með "sögu"rútu um athygliverða sögustaði á leiðinni til Akureyrar. 30 mínútna stopp verður á Möðruvöllum þar sem heimamenn taka á móti hópnum, sýna okkur kirkjuna ofl. ásamt því að fræða okkur um sögu staðarins

 

    Á Hjalteyri verður lifandi markaðstemning þá daga sem Húni II kemur þangað.   Handverkskonur kynna þar og selja  vörur sínar.

 

Hjalteyri

Gamalt sjávarþorp. Þar réði síldin ríkjum áratugum saman frá því að Norðmenn, Skotar og Svíar sóttu hana á Íslandsmið um miðbik 19. aldar. Stærsta síldarverksmiðja í heimi var reist þar 1937. Hýsir nú menningarmiðstöðina Verksmiðjuna. Fiskey ehf er þar með seiðaeldi á lúðu sem hefur vakið heimsathygli.


Fagriskógur

Fagriskógur bær á svonefndri Galmaströnd . Þaðan var Davíð Stefánsson (1885 -1964 ) eitt ástsælasta skáld okkar íslendinga.


Möðruvellir í Hörgárdal

Eitt mesta sögusetur á Íslandi. Munkaklaustur stofnað 1296, Möðruvallaskóli 1880. Kirkjujörð og prestsetur, amtmannsetur og höfuðból. Þar var Bjarni Thorarensson amtmaður, þar eru einnig fæddir Hannes Hafstein ráðherra og Jón Sveinsson rithöfundur (Nonni) ásamt fleirum. Á Möðruvöllum hafa orðið fleiri stórbrunar en á nokkru öðru býli á Íslandi.


Skipalón

Landnámsjörð Eysteins Rauðólfssonar. Þar bjó Þorsteinn Daníelsson (1796-1882) byggingarmeistari, skipasmiður og atorkumaður byggði mörg merk hús og kirkjur til dæmis kirkjuna á Möðruvöllum. Smíðahúsið á Skipalóni er reist 1884 og er nú í vörslu þjóðminjasafnsins


Gásir

Þar er Gásakaupstaður, friðlýstar fornminjar frá miðöldum í umsjón Fornleifaverndar ríkisins.   Á staðnum má sjá einstakar rústir þessa forna kaupstaðar sem var þar frá 12.öld og allt fram á þá 16. Einar merkustu miðaldafornminjar á Íslandi


 

 

Dagsetningar og tímar:

   Húni II leggur af stað frá Torfunefsbryggju á Akureyri kl 16:30. Ferðin til Hjalteyrar tekur rétt um klukkustund. Farið verður eftirfarandi daga: 2.júlí, 9.júlí, 16.júlí, 30.júlí, 6.ágúst og 13.ágúst.


Verðskrá :

Sigling til Hjalteyrar 18 ára og eldri 2.500 kr

Sigling til Hjalteyrar 12 - 18 ára 1.000 kr

Frítt fyrir börn yngri en 12 ára

Leiðsögn á Hjalteyri og sögurúta 1.600 kr

"Eyfirski söguhringurinn" (sigling og sögurúta)

4.100 kr fyrir 18 ára og eldri.

 

   Upplýsingar og pantanir í síma 8200980 & 8963569 sportrutan@internet.is, eða hjá Húna II í síma 8484864 & 6991950 steinipje@simnet.is

 

Ferðaskipuleggjandi

  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband